29.07.09 - 14:06
Gunnar Gunnarsson
Barcelona lánar Keirrison til Benfica (Staðfest)

Keirrison þarf að kveðja Barcelona tímabundið en hann var lánaður til Benfica.

Mynd: Getty Images

Zlatan segist hlakka til að spila með brasilíska framherjanum.

Evrópumeistarar, Barcelona sem keyptu nýlega brasilíska sóknarmanninn Keirrison frá Palmeiras hafa ákveðið að lána leikmanninn til Benfica.
Þessi 20 ára gamli leikmaður gekk í raðir Barcelona í síðustu viku en kemur til með að spila með portúgalska liðinu Benfica á komandi keppnistímabili til að öðlast reynslu.
Forráðamenn Börsunga hafa tekið þessa ákvörðun eftir að ljóst var að Zlatan Ibrahimovic myndi ganga til liðs við félagið en Katalóníuliðið er ekki á flæði skeri statt hvað sóknarmenn varðar en fyrir eru Thierry Henry, Lionel Messi og Bojan Krkic.
Með þessa leikmenn innanborðs eru möguleikar Keirrison á að spila reglulega hjá félaginu ekki miklir og kom því Benfica til sögunnar en þar mun þessi ungi Brasilíumaður fá ögn meiri leiktíma en hjá Evrópumeisturunum.
,,Ég er mjög sáttur, Benfica er stórt félag sem allir þekkja,\" sagði Keirrison í viðtali við spænska fjölmiðla.
,,Að spila í Portúgal mun auðvelda mér að aðlagast evrópskri knattspyrnu vegna tungumálsins og einnig vegna þess að margir Brasilíumenn eru á mála hjá Benfica,\" bætti Keirrison við.
Keirrison kemur væntanlega til með að spila eitt ár með Benfica en hvað sem því líður þá dreymir hann um að fá að spila við hlið Ibrahimovic í framlínu Barcelona.
,,Ég hitti Zlatan á þriðjudaginn vegna þess að við dvöldum á sama hóteli. Við töluðum saman á ensku og hann virtist vera ágætis náungi. Hann sagði að hann myndi bíða eftir mér þangað til að ári liðnu. Það yrði algjör draumur að fá að spila með honum í framtíðinni,\" sagði Keirrison að lokum.

Heimild: Soccernet