Fotbolti.net
29.07.09 - 16:03
Magnús Már Einarsson

Darko Kavcic tekur við Víkingi Ólafsvík (Staðfest)

Darko Kavcic tekur við Víkingi Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Darko Kavcic hefur verið ráðinn þjálfari Víkings frá Ólafsvík en hann mun þjálfa liðið út tímabilið.
Kavcic er 45 ára Slóveni og er með UEFA A prófgráðu í þjálfarafræðum.

Hann hefur undanfarin tvö ár þjálfað lið í Saudi Arabíu auk þess sem hefur hann umtalsverða reynslu sem unglingaþjálfari bæði í Slóveníu og Austurríki.

Víkingar hafa verið í þjálfaraleit síðan að Kristinn Guðbrandsson var rekinn í byrjun mánaðarins.

Ejub Purisevic tók tímabundið við liðinu en gat ekki haldið áfram vegna anna og Jónas Gestur Jónasson því stýrt Ólafsvíkingum í síðustu þremur leikjum.

Kavcic kemur til landsins þriðjudaginn 4. ágúst og mun hann stýra sinni fyrstu æfingu sama kvöld.

Hann mun síðan stýra Víkingi í fyrsta skipti gegn Haukum laugardaginn 8.ágúst næstkomandi en Víkingar eru sem stendur í botnsæti 1.deildarinnar með sjö stig.

Heimild: Heimasíða Víkings

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.