29.07.09 - 17:17
Magnús Már Einarsson
Kolo Toure til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupunum á Kolo Toure varnarmanni Arsenal en talið er að kaupverðið hljóði upp á sextán milljónir punda.
Toure stóðst læknisskoðun fyrr í dag og hefur núna skrifað undir fjögurra ára samning við City eftir að hafa leikið með Arsenal undanfarin sjö ár.
,,Ég er ánægður með að geta boðið Kolo velkominn til Manchester City,\" sagði Mark Hughes stjóri Manchester City.
,,Það er ekkert leyndarmál að við höfum verið að leita að styrkingu í vörninni og ég tel að við höfum krækt í heimsklassa leikmann með því að fá Kolo.\"
,,Hann kemur með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir sjö tímabil með Arsenal.\"
,,Kolo hefur verið lykilmaður í mjög sterku Arsenal liði í mörg ár og ég hef hrifist af honum í langan tíma,\" sagði Hughes.
Manchester City hefur í sumar fengið Gareth Barry, Roque Santa Cruz, Carlos Tevez og Emmanuel Adebayor en talið er að Joleon Lescott varnarmaður Everton sé næsta skotmark félagsins.

Heimild: Sky