Fotbolti.net
29.07.09 - 22:15
Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn og Eysteinn taka við Þrótti (Staðfest)

Þorsteinn Halldórsson tekur við Þrótti ásamt Eysteini Pétri Lárussyni.

Þorsteinn Halldórsson tekur við Þrótti ásamt Eysteini Pétri Lárussyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson aðstoðarþjálfari Þróttar og Eysteinn Pétur Lárusson íþróttafulltrúi félagsins hafa tekið við þjálfun liðsins af Gunnari Oddssyni sem hætti fyrr í kvöld.

Þetta var tilkynnt í yfirlýsingu sem sjá má hér að neðan.
Yfirlýsing Þróttar
Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar hefur ákveðið að þeir Þorsteinn Halldórsson og Eysteinn Pétur Lárusson taki við þjálfun úrvalsdeildarlið félagsins frá deginum í dag út keppnistímabilið. Gunnar Oddsson sem verið hefur þjálfari liðsins hefur látið af störfum.

Þeir Þorsteinn og Eysteinn eru báðir fyrrverandi leikmenn og fyrirliðar Þróttar og margreyndir þjálfarar. Þeir þekkja félagið og leikmannahóp meistaraflokks karla mjög vel og það er mat stjórnarinnar að þeir hafi það sem þarf til að snúa vörn í sókn. Þorsteinn verður aðalþálfari liðsins og Eysteinn honum til aðstoðar.
Stjórn knattspyrnudeildarinnar metur það svo, að rétt sé á þessari stundu að leita inn í raðir félagsmanna eftir þjálfurum til að snúa gengi liðsins til betri vegar og standa sig í þeirri hörðu baráttu sem framundan er.

Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.