Fotbolti.net
29.07.11 - 09:22
Hafliði Breiðfjörð

Chris Eagles og Tyrone Mears til Bolton (Staðfest)

Chris Eagles er farinn til Bolton.

Chris Eagles er farinn til Bolton.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Bolton hefur gengið frá kaupum á þeim Chris Eagles og Tyrone Mears frá Burnley og gert þriggja ára samning við leikmennina.
Owen Coyle knattspyrnustjóri Bolton þekkir vel til leikmannnana sem hann hafði áður keypt til Burnley þegar hann var knattspyrnustjóri þar.

,,Bæði Chris og Tyrone eru topp leikmenn og hafa sýnt að þeir hafa hæfileika til að keppa með góðum árangri á meðal þeirra bestu,\" sagði Colye um leikmennina.

Talið er að kaupverð fyrir báða leikmennina saman sé 3 milljónir punda en Mears er 28 ára varnarmaður og Eagles 25 ára miðjumaður.

,,Ég hef unnið með báðum áður og veit hvað þeir koma með til félagsins hvað varðar persónuleika og framlag og auk Nigel Reo-Coker höfum við bætt við alvöru gæðum við hópinn,\" bætti Coyle við en Reo-Coker kom frá Aston Villa í fyrradag og samdi til tveggja ára.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.