29.07.11 - 12:31
Hafliði Breiðfjörð
Haukur Ingi Guðnason í Grindavík (Staðfest)

Haukur Ingi í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Ingi í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Haukur Ingi Guðnason er genginn til liðs við Grindavík og hefur fengið félagaskiptin staðfest hjá KSÍ.
Haukur Ingi tók sér hlé frá knattspyrnu á fyrri hluta þessarar leiktíðar en staðfesti við Fótbolta.net fyrr í júlí að hann hafi fengið að æfa með Þrótti og nokkur félög hafi sýnt sér áhuga.

Nú hefur hann gengið til liðs við Grindavík sem er í þriðja neðsta sæti Pepsi-deildarinnar með 11 stig úr fyrstu 12 umferðunum.
Haukur Ingi er fæddur 1978 en hann lék sjö leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni í fyrra. Hann hefur einnig leikið með Fylki og KR í efstu deild og var á sínum tíma á mála hjá Liverpool.