29.07.11 - 13:02
Hafliði Breiðfjörð
Keflavík kallar Ísak Örn úr láni frá Haukum (Staðfest)

Ísak Örn Þórðarson í leik með Haukum gegn Keflavík í Valitor bikarnum fyrr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Keflavík hefur kallað framherjann Ísak Örn Þórðarson úr láni frá 1. deildarliði Hauka en leikmaðurinn hefur þegar fengið félagaskipti til baka.
Ísak Örn sem er 23 ára gamall hafði komið Keflavíkur í vetur frá Njarðvík og skoraði mikið í æfingaleikjum með liðinu.
Þrátt fyrir það var hann lánaður til Hauka fyrir tímabilið og skoraði þar tvö mörk í 11 leikjum í 1. deildinni.
Hann snýr nú aftur til Keflavíkur fyrir síðasta hluta Pepsi-deildarinnar en liðið er í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar með 17 stig úr 12 leikjum.
Ísak Örn hafði þar til í vetur aðeins spilað með Njarðvík hér á landi og á að baki 70 leiki í deild og bikar og hefur skorað í þeim 10 mörk.