29.07.11 - 14:23
Hafliði Breiðfjörð
Steinar Tenden til KA að nýju 8 árum síðar (Staðfest)

KA menn eru að sækja liðsstyrk í félagaskiptaglugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Framherjinn Steinar Tenden er genginn aftur til liðs við KA átta árum eftir að hann lék síðast með liðinu.
Norðmaðurinn fékk félagaskipti sín frá Noregi staðfest í dag og klárar því tímabilið með KA mönnum.
Hann er orðinn 33 ára gamall og en lék síðast með KA sumarið 2003 er liðið var í efstu deild. Þá skoraði hann 11 mörk í 22 leikjum fyrir liðið.
Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til KA frá Førde í norsku 2. deildinni í félagaskiptaglugganum sem senn fer að loka því áður kom Elmar Dan Sigþórsson til félagsins frá sama liði 14. júlí.
KA hefur einnig fengið skoska miðjumanninn Brian Gilmour í glugganum og Orri Gústafsson frá Dalvík/Reyni.