Fotbolti.net
29.07.11 - 13:36
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Georg Markan í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Pétur Georg í leik með Víkingum í sumar.

Pétur Georg í leik með Víkingum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kantmaðurinn Pétur Georg Markan er kominn til 1. deildarliðs BÍ/Bolungarvíkur á láni út tímabilið frá Pepsi-deildarliði Víkings.

Pétur Georg verður kominn með leikheimild með BÍ/Bolungarvík fyrir leikinn mikilvæga gegn KR í undanúrslitum Valitor-bikars karla á Torfnesvelli á sunnudaginn.
Guðjón Þórðarson þjálfar lið BÍ/Bolungarvíkur sem eru nýliðar í 1. deildinni en hafa komið á óvart og eru í 4. sæti deildarinnar auk þess að vera komnir í undanúrslit bikarsins þar sem þeir slógu meðal annars út Íslandsmeistara Breiðabliks á leiðinni.

Pétur Georg kom til Víkings frá Fjölni fyrir þessa leiktíð og hafði leikið 8 leiki með liðinu í deild og bikar í sumar en þeir verða ekki fleiri þar sem hann fer í BÍ/Bolungarvík.

Hann hefur mikla reynslu og hefur leikið 168 leiki í deild og bikar hér á landi og hefur skorað í þeim 70 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.