29.07.11 - 14:09
Hafliði Breiðfjörð
Fyrrverandi fyrirliði varaliðs Man Utd í Fram (Staðfest)

Sam Hewson í búningi Manchester United. Hann spilar í búningi Fram út þessa leiktíð.

Mynd: Getty Images

Sam Hewson fyrrverandi fyrirliði varaliðs Manchester United er genginn til liðs við botnlið Pepsi-deildarinnar, Fram, og hefur fengið félagaskipti sín staðfest og skrifað undir tveggja ára samning. Hewson er 22 ára gamall enskur miðjumaður sem lék síðast með Altrincham 19 leiki á síðustu leiktíð eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Manchester Unitd.
Hewson kemur uppúr akademíu Manchester United þar sem hann byrjaði 10 ára gamall, meðan á dvöl hans hjá United stóð var hann meðal annars fyrirliði u-18 ára og varaliðs United.
Hann vann bæði Manchester Senior Cup og Lancashire Senior Cup með varaliði United. Hjá United spilaði hann að mestu undir stjórn undir stjórn Brian McClair og Ole Gunnar Solskjaer.
Hewson var á varamannabekk aðalliðs United þegar liðið mætti Roma í meistaradeildinni árið 2007.
Hann var á mála hjá Altringham á síðasta keppnistímabili og spilaði 19 leiki og skoraði 1 mark fyrir liðið í deild og bikar.
Framarar hafa einnig fengið framherjann Steven Lennon í félagaskiptaglugganum auk þess sem þeir keyptu Hólmbert Aron Friðjónsson frá HK.