Fotbolti.net
29.07.11 - 15:14
Hafliði Breiðfjörð

Magnús Blöndal lánaður frá KA í Stjörnuna (Staðfest)

Magnús Blöndal í leik með KA í sumar. Hann er farinn í Stjörnuna.

Magnús Blöndal í leik með KA í sumar. Hann er farinn í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Vinstri bakvörðurinn Magnús Blöndal er genginn til liðs við Stjörnuna á láni frá 1. deildarliði KA og hefur fengið félagaskipti sín staðfest hjá KSÍ.
Magnús Blöndal hefur leikið með KA allan sinn feril utan árið 2009 er hann var hjá KS/Leiftri.

Hann er 22 ára gamall varnarmaður sem hefur fengið fá tækifæri hjá Gunnlaugi Jónssyni þjálfara KA í sumar og aðeins komið við sögu í einum leik. Hann ákvað því að leita á önnur mið.

Hann á að baki 34 leiki í deild og bikar með KA og KS/Leiftri og hefur skorað eitt mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.