29.07.11 - 16:19
Hafliði Breiðfjörð
Jürgen Klinsmann ráðinn þjálfari Bandaríkjanna (Staðfest)

Jürgen Klinsmann er kominnn í fótboltann að nýju.

Mynd: Getty Images

Þjóðverjinn Jürgen Klinsmann hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Bandaríkjanna en þetta var staðfest á vef bandaríska knattspyrnusambandsins í dag. Hann verður 35. þjálfari landsliðsins.
,,Við erum spenntir að fá Jürgen sem aðalþjálfari karlalandsliðs okkar,\" sagði Sunil Gulati formaður sambandsins við fjölmiðla í dag.
,,Hann var mjög leikinn leikmaður og þjálfari með reynslu og hefur mikla þekkingu á fótboltanum. Jürgen hefur náð árangri á mörgum sviðum í leiknum og við hlökkum til þess að sjá hvað hann gerir við liðið innan sem utan vallar.\"
Klinsmann verður svo formlega kynntur sem landsliðsþjálfari næstkomandi mánudag á fréttamannafundi. Hans fyrsti leikur með liðið verður gegn Mexíkó í Philadelphia 10. ágúst næstkomandi.