29.07.11 - 18:22
Hafliði Breiðfjörð
Ben Foster til WBA (Staðfest)

Ben Foster leikur með WBA á næstu leiktíð.

Mynd: Getty Images

WBA hefur fengið markvörðinn Ben Foster á láni frá Birmingham út tímabilið en þetta var staðfest á vef félagsins núna í kvöld.
Foster sem er 28 ára gamall fór í læknisskoðun hjá WBA seinni partinn í dag og skrifaði svo undir samninginn út tímabilið.
Hann leysir stöðu Scott Carson sem gekk til liðs við Bursaspor í Tyrklandi fyrr í mánuðinum.
Boaz Myhill varamarkvörður mun svo ganga til liðs við Birmingham í stað Foster, einnig á láni út tímabilið en hvorugt félag mun eiga kost á að kalla sinn markvörð til baka samkvæmt samningnum.
Foster var leikmaður ársins hjá Birmingham á síðustu leiktíð. Hann gæti spilað með WBA gegn Bristol City í æfingaleik á morgun.

Heimild: Vefur WBA