Fotbolti.net
29.07.11 - 18:29
Hafliði Breiðfjörð

Charles N\'Zogbia til Aston Villa (Staðfest)

Charles N\'Zogbia með búning Aston Villa eftir undirskriftina. Hann fær treyjunúmerið 10 hjá sínu nýja félagi og skrifaði undir fimm ára samning.

Charles N\'Zogbia með búning Aston Villa eftir undirskriftina. Hann fær treyjunúmerið 10 hjá sínu nýja félagi og skrifaði undir fimm ára samning.

Canon

Mynd: Vefur Aston Villa

Charles N\'Zogbia er genginn til liðs við Aston Villa en hann gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði svo undir fimm ára samning sem gildir til ársins 2016. Þetta var staðfest á vef Aston Villa.
N\'Zogbia er 25 ára gamall Frakki sem kemur til félagsins frá Wigan. Hann mun hefja leik með Aston Villa á miðvikudaginn þegar liðið mætir Derby í æfingaleik og svo aftur gegn Braga í Portúgal laugardaginn 6. ágúst.

,,Ég er virkilega ánægður og mjög spenntur yfir að hafa samið við Aston Villa,\" sagði hann á vef Aston Villa.

,,Þetta er frábært félag og þetta er virkilega stórt skref fyrir mig á ferli mínum, svo ég er viss um að ég muni njóta fótboltans hérna. Ég held að þetta verði virkilega góð leiktíð og vonandi mun ég gera vel hérna.\"

,,Ég get ekki beðið eftir að hitta nýju liðsfélagana, spila með þeim og vinna með þeim í að gera eitthvað gott á þessari leiktíð. Alex McLeish er sterkur stjóri og ég held að hann muni búa til virkilega gott lið þetta tímabilið.\"


N\'Zogbia kom til Newcastle Unitd í september árið 2004 og hefur átt góð ár á Englandi síðan. Hann lék 118 leiki fyrir Newcastle oftast sem vinstri kantmaður en leysti stundum bakvarðarstöðuna líka. Hann fór til Wigan á lokadegi félagaskiptagluggans 2009 og var þar í tvo og hálft ár áður en hann fór núna til Wigan.

Heimild: Vefur Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.