Fotbolti.net
29.07.21 - 10:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalski boltinn

Eriksen snýr aftur til Inter í næstu viku

Christian Eriksen.

Christian Eriksen.

Canon

Mynd: Getty Images

Christian Eriksen mun í næstu viku snúa aftur til ítalska félagsins Inter þar sem hann mun gangast undir próf til þess að sjá hvort hann geti haldið áfram að spila fótbolta.
Eriksen fór í hjartastopp í leik með danska landsliðinu gegn Finnlandi á EM alls staðar í sumar og var bjargráður græddur í hann í kjölfarið. Samkvæmt reglum ítalska boltans þá má hann ekki spila með slíkan búnað í deildinni.

Búnaðurinn var græddur í bringu Eriksen til að nema frekari truflanir á hjartslætti hans.

Læknar þurfa að vera vissir um að hann geti spilað án búnaðarins.

Hann mun gangast undir læknisskoðun hjá Inter og verður það athugað hvort hann geti aftur spilað fótbolta á hæsta stigi.

Þó að allt gangi vel, þá er ólíklegt að hann spili næstu sex mánuðina að sögn Sky Sports.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.