29.08.06 - 06:45
Magnús Már Einarsson
Hvöt fær Stefán Loga lánaðan frá KS/Leiftri (Staðfest)

Stefán Logi Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Logi Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvöt úr þriðju deild hefur fengið markvörðinn Stefán Loga Magnússon að láni frá KS/Leiftri í annarri deild út tímabilið. Samninga- og félagaskiptanefnd ákvað að veita Hvöt undanþágu til að fá leikmanninn þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður þar sem danski markvörðurinn Mads Mortensen er handleggsbrotinn og félagið frá Blönduósi hefur því engan annan markvörð.
,,Við siglum nokkuð lygnan sjó í deildinni og þeir leikir sem við eigum eftir skipta ekki miklu máli fyrir hvorki okkur né þau lið sem við erum að spila við," sagði Þórir Hákonarson formaður knattspyrnudeildar KS en hinn sautján ára gamli Stefán Geir Andrésson mun standa á milli stanganna hjá KS/Leiftri í lokaleikjunum í annarri deildinni þar sem félagið er í sjöunda sætinu.
Stefán Logi var á sínum tíma á mála hjá Bayern Munchen og einnig hjá Bradford í Englandi. Hann kom heim úr atvinnumennskunni árið 2003 og gekk þá til liðs við Víking R. áður en að hann fór í Þrótt og síðan í KS/Leiftur.
Hann verður með Hvöt gegn Magna í úrslitakeppni þriðju deildarinnar í kvöld en síðarnefnda liðið sigraði fyrri leik liðanna 2-0 á Grenivík síðastliðinn laugardag.