Fotbolti.net
29.08.06 - 11:40
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Odonkor til Real Betis (Staðfest)

Odonkor á sprettinum á HM

Odonkor á sprettinum á HM

Canon

Mynd: Getty Images

Kantmaðurinn David Odonkor hefur gengið til liðs við Real Betis frá þýska félaginu Borussia Dortmund fyrir fjórar milljónir punda.
Þessi 22 ára gamli leikmaður stóðst læknisskoðun í gærkvöld og skrifaði undir fimm ára samning við spænska klúbbinn.

Odonkor, sem var óvænt í landsliðshópi Jurgen Klinsmann á HM í sumar, er ætlað að fylla skarð Joaquin sem gekk til liðs við Valencia í gær.

Hann þykir mjög snöggur og eitt sinn var hann mældur hlaupa hundrað metrana á 10,7 sekúndum en það er tæp sekúnda lengur heldur en heimsmetið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.