Fotbolti.net
29.08.07 - 14:13
Sindri Þór Þorgeirsson

Radzinski til liðs í Grikklandi (Staðfest)

Radzinski er hér í miðjunni

Radzinski er hér í miðjunni

Canon

Mynd: Getty Images

Tomas Radzinski fyrrverandi leikmaður ensku úrvalsdeildaliðanna Everton og Fulham gekk í dag til gríska liðsins Xanthi.
Þessi kanadíski leikmaður hefur verið að leita sér að nýju félagi í allt sumar eftir að samningur hans við Fulham rann út eftir síðastliðið tímabil.

Radzinski er 33 ára sóknarmaður og hann skrifaði undir tveggja ára samning við Xanthi eftir að hafa gengist undir læknisskoðun hjá félaginu. Hann sagði að metnaður forsvarsmanna félagsins hafi sannfært sig um að ganga til liðs við félagið.

,,Ef eitthvað er að marka samtöl mín við fólkið hjá Xanthi þá er þetta metnaðarfullt félag, það heillar mig því að ég vil spila fyrir félag sem hefur háleit markmið," sagði Radzinski við gríska fjölmiðla í dag.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.