29.08.07 - 14:45
Hafliði Breiðfjörð
Yakubu til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton hafa gengið frá 11,25 milljón punda kaupum á Yakubu framherja Middlesbrough eftir að leikmaðurinn fékk atvinnuleyfi á Englandi. Yakubu sem er 24 ára gamall hafði áður verið hafnað um atvinnuleyfi því hann hefur ekki spilað 75% af landsleikjum Nígeríu undanfarin tvö ár.
Everton áfrýjaði hinsvegar og framherjinn hefur nú skrifað undir fimm ára samning á Goodison Park eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Hann er næst markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin fjögur ár á eftir Thierry Henry fyrrum leikmanni Arsenal sem í dag leikur með Barcelona.
,,Ég er ánægður með að vera hérna. Það er frábær tilfinning að koma hingað og hitta fullt af góðum leikmönnum og sjá andann hjá þeim," sagði Yakubu á vefsíðu Everton.
,,Ég hef alltaf sagt að ég vilji spila fyrir félag sem spilar í Evrópu og ég tel að þeir hafi metnaðinn til að fara fram á við og að þeir vilji enda meðal fjögurra efstu liða og í MEistaradeildinni og UEFA Cup og það er minn draumur."
,,Ég veit að það er löng leið og ég vil vera hluti af þessu, að ná árangri og eiga þennan draum."
,,Ég valdi að fara til Middlesbrough á sínum tíma því þeir voru í Evrópu en nú eru þeir það ekki. Ég held að ég hafi tekið rétta ákvörðun að koma hingað."
,,Þetta er mjög stórt félag og það er frábær tilfinning að koma hingað. Það eru frábærir leikmenn og maður vill spila fyrir stórt félag.

Heimild: BBC