Fotbolti.net
29.08.07 - 18:49
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Danny Higginbotham til Sunderland (Staðfest)

Higginbotham í leik með Southampton á sínum tíma

Higginbotham í leik með Southampton á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Danny Higginbotham frá Stoke City fyrir þrjár milljónir punda.
Klúbbarnir tveir komust að samkomulagi á þessum fyrrum leikmanni Manchester United, Southampton og Derby eftir að hann hafnaði samningstilboði á Britannia Stadium.

Sunderland borgar 2,5 milljónir punda fyrir varnarmanninn sem gæti hækkað um 500 þúsund pund í viku, eftir frammistöðu Higginbotham og Sunderland.

,,Við erum mjög vonsviknir að missa Danny en það er hins vegar erfitt að halda leikmanni sem vill ekki lengur spila fyrir okkur,” sagði í yfirlýsingu Stoke.

Higginbotham byrjaði feril sinn hjá Manchester United og var í þrjú ár á Old Trafford, þar sem Roy Keane var leikmaður.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.