29.08.07 - 19:53
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Jones til Sunderland á sex milljónir punda (Staðfest)

Kenwyne Jones fór í verkfall hjá Southampton

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Kenwyne Jones frá Southampton sem kostar hvorki meira né minna en sex milljónir punda.
Þessi 22 ára gamli landsliðsmaður frá Trinidad og Tobago fór í verkfall hjá Southampton í síðustu viku og sagðist ekki vilja spila áfram fyrir félagið.
Derby voru einnig orðaðir við Jones en það voru Sunderland sem fengu leyfi til þess að tala við leikmanninn eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð á kappanum.
Þá hefur landi hans Stern John, sem er 30 ára gamall, farið í hina áttina.
Jones eru þriðju kaup Roy Keane í dag eftir að Ian Harte, sem kom á frjálsri sölu og Danny Higginbotham kom frá Stoke fyrir þrjár milljónir punda.

Heimild: BBC