29.08.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
John Mensah til Sunderland (Staðfest)

Mensah eltir Thierry Henry.

Mynd: Getty Images

Mensah eltir Thierry Henry.

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur fengið varnarmanninn John Mensah á láni frá Lyon út þetta tímabil.
Þessi 26 ára gamli leikmaður er margreyndur landsliðsmaður fra Ghana.
,,Ég er mjög ánægður með að ganga í raðir Sunderland, þetta er draumur sem er að rætast því að það er ekki auðvelt að spila á Englandi,\" sagði Mensah.
,,Ég vil segja stuðningsmönnunum að þeir eigi ekki að búast við töfrum frá mér en ég mun reyna mitt besta.\"
Mensah er enn einn leikmaðurinn sem Steve Bruce fær til Sunderland í sumar en áður höfðu Paulo da Silva, Lee Cattermole, Lorik Cana, Fraizer Campbell og Darren Bent gengið í raðir félagsins.

Heimild: BBC