Fotbolti.net
29.08.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Dindane, Boateng og O\'Hara til Portsmouth (Staðfest)

Jamie O\'Hara.

Jamie O\'Hara.

Canon

Mynd: Getty Images

Joe Hart, stjóri Portsmouth, er grimmur á leikmannamarkaðinum þessa dagana en í gær fékk hann Kevin-Prince Boateng, Aruna Dindane og Jamie O\'Hara til félagsins.
Boateng, sem er 22 ára, miðjumaður kemur til Portsmouth á fjórar milljónir punda eftir að hafa fengið fá tækifæri hjá Tottenham síðan að hann kom til félagsins árið 2007.

O\'Hara kemur einnig frá Tottenham en hann verður á láni hjá Portsmouth fram í janúar.

Dindane, sem er 28 ára framherji, kemur á láni frá Lens í Frakklandi en hann gæti í kjölfarið gert samning við Portsmouth næsta sumar.

Auk þessara leikmanna kom Michael Brown einnig til Portsmouth frá Wigan í gærmorgun.

Þá bauð Portsmouth fjórar milljónir punda í Nyron Nosworthy leikmann Sunderland en því tilboði var hafnað í gær.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.