Fotbolti.net
29.08.11 - 14:04
Magnús Már Einarsson

Roque Santa Cruz til Real Betis (Staðfest)

Roque Santa Cruz til Real Betis (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Betis hefur fengið framherjann Roque Santa Cruz á láni frá Manchester City.

Þessi þrítugi leikmaður verður á láni hjá nýliðum Real Betis út tímabilið.
Santa Cruz kom til Manchester City frá Blackburn Rovers fyrir tveimur árum.

Hann hefur hins vegar ekki verið inni í myndinni hjá Roberto Mancini og síðari hlutann á síðasta tímabili var hann í láni hjá Blackburn.

Samtals hefur Santa Cruz einungis leikið átta leiki í byrjunarliði hjá Manchester City.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.