Aleksandar Linta: Fólk segir ýmislegt

Aleksander Linta þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksander Linta þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tók á móti Þór Akureyri á Hásteinsvelli fyrr í dag.
Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Aleksander Linta þjálfara Eyjamanna.
Þetta var leikur sem þið þurftuð að vinna, hver eru þín fyrstu viðbrögð eftir leik ?
„Þessi þrjú stig þýða mikið fyrir bæði lið en því miður fengu Þórsarar þau í dag. Þetta er eiginlega bara sagan hjá okkur í sumar, mér fannst við fá nóg að færum til að skora allavega eitt mark. Við klúðruðum víti og settum boltann 1-2 í stöngina en við fáum á okkur mjög auðveld mörk þetta er ekki flóknara en það.
Fólki finnst þú ekki spila nógu beinskeyttann fótbolta hvað hefurðu að segja um það ?
„Þú veist hvernig þetta er! Þegar maður er ekki að sækja úrslit þá segir fólk ýmislegt. Mér fannst við skapa mörg tækifæri í dag þannig ég er alls ekki sammála þeim. Ef varnarlínan er há hjá andstæðingunum þá spilum við beinskeytt en ef hún er látt niðri þá þarf að spila meira."
Hvað geturðu sagt mér um Omar Sowe sem er á bekknum í dag og er að renna út af samningi eftir tímabilið?
„Ef þú ert að spá hvort hann sé að fara skrifa undir nýjan samning þá bara hreinlega veit ég það ekki. Ég setti hann á bekkinn í dag út af við þurfum meiri orku fram á við og hann hefur ekki verið að skila miklu undanfarið, þannig þetta snérist bara um að fá ferskar lappir inn og við vissum að við myndum setja hann inná í seinni hálfleik."
Hvar var Óskar Zoega í dag?
„Óskar eignaðist lítinn strák í Reykjavík í gær þannig hann er bara þar með fjölskyldunni og ég vil segja einusinni enn til hamingju við hann."
ÍBV 0 - 1 Þór
0-0 Vicente Rafael Valor Martínez ('30 , misnotað víti)
0-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('45 )
Rautt spjald: Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Þór ('83) Lestu um leikinn
