Fotbolti.net
29.08.26 - 19:35
Sverrir Örn Einarsson

Siggi Höskulds: Fyrsti af sjö

Auglýsing
Siggi Höskulds

Siggi Höskulds

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór Akureyri vann dýrmætan 1-0 sigur í fallbaráttu Bestu deildar karla í kvöld þegar liðið bar sigurorð af ÍBV í Vestmannaeyju og lyfti sér um leið úr botnsæti deildarinnar um stund. Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari þeirra var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 1 Þór
„Frábær liðsframmistaða, við ýttum aðeins við okkur í vikunni og vildum aðeins kveikja á Þórshjartanu, baráttunni og stemmingunni í liðinu, Frábært svar hjá liðinu eftir síðustu tvo leiki og ég er bara gríðarlega ánægður með þennan sigur því hann var mjög erfiður og torsóttur.“ Sagði Siggi um sín fyrstu viðbrögð við leiknum og bætti við.

„Mjög góð vísbending um það sem er að koma. Okkar úrslitakeppni er bara byrjuð, fyrsti leikur af sjö sem við settum upp sem okkar úrslitakeppni og að byrja það á sigri hér í Eyjum er bara frábært.“

Það gaf á bátinn hjá gestunum í dag þrátt fyrir sigurinn og margt sem hefði getað farið á annan veg. Vítaspyrna var dæmd á þá sem þó leiddi ekki til marks og þá fékk Bjarni Guðjón að líta rautt spjald er skammt lifði leiks. Lið Þórs lifði það þó af.

„Ég veit ekki einu sinni hvort mér finnist þetta brot og veit ekki hvort hann fari í hann. Það hefði getað kostað og er óheppni og kannski ekki nægjanlega góð framkvæmd en 10 menn og á tímabili níu inn á vellinum en við stóðum þetta af okkur.“

Allt viðtalið við Sigurð Heiðar má sjá hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.