Fotbolti.net
29.08.26 - 19:30
Sverrir Örn Einarsson

Þýskaland: Dortmund hefur tímabilið á sigri

Serhou Guirassy

Serhou Guirassy

Canon

Mynd: EPA

Borussia Dortmund vann öruggan 2-0 heimasigur gegn Hamburger SV í fyrsta leik sínum á nýju tímabili í þýsku Bundesligunni í kvöld.

Borussia D. 2 - 0 Hamburger
1-0 Serhou Guirassy ('9 )
2-0 Giannis Konstantelias ('45)
Rautt spjald: Samuele Inacio, Borussia D. ('77)
Það tók heimamenn aðeins 9 mínútur að ná forystunni í leik kvöldsins. Framherjinn öflugi Serhou Guirassy var þar á ferðinni er hann setti boltann í netið eftir stoðendingu frá Konstantinos Karetsas.

Dortmund tvöfaldaði forystu sína rétt fyrir hálfleik þegar Grikkinn ungi Giannis Konstantelias skoraði eftir undirbúning frá Maximilian Beier og tryggði Dortmund góða stöðu fyrir seinni hálfleikinn.

Síðari hálfleikurinn varð markalaus en heimamenn hleyptu þó smá spennu í leikinn þegar varamaðurinn Samuele Inácio fékk beint rautt spjald á 77.mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á völlinn fyrir háskalega tæklingu.

Önnur úrslit í Bundesligunni má sjá hér að neðan.

Koln 3 - 2 Hoffenheim
0-1 Adam Daghim ('27 )
1-1 Said El Mala ('51 )
1-1 Max Moerstedt ('57 , Misnotað víti)
1-2 Ozan Kabak ('67 )
2-2 Thijs Dallinga ('72 )
3-2 Thijs Dallinga ('82 )

Union Berlin 3 - 3 Eintracht Frankfurt
1-0 Emmanuel Latte Lath ('3 )
1-1 Younes Ebnoutalib ('10 )
1-2 Younes Ebnoutalib ('11 )
1-3 Younes Ebnoutalib ('67 )
2-3 Leopold Querfeld ('79 )
3-3 Tim Skarke ('90 )

Mainz 0 - 0 Paderborn

RB Leipzig 3 - 0 Borussia M.
1-0 Ridle Baku ('25 )
2-0 Antonio Nusa ('49 )
3-0 Rocco Reitz ('66 )

Elversberg 3 - 2 Bayer
1-0 Lukas Petkov ('8 )
2-0 Cole Campbell ('9 )
3-0 David Mokwa ('46 )
3-1 Patrik Schick ('77 )
3-2 Christian Kofane ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Bayern1+43
2RB Leipzig1+33
3Dortmund1+23
4Köln1+13
5Elversberg1+13
6Union Berlin101
7Frankfurt101
8Mainz101
9Paderborn101
10Werder000
11Schalke 04000
12Freiburg000
13Augsburg000
14Leverkusen1-10
15Hoffenheim1-10
16Hamburger1-20
17Gladbach1-30
18Stuttgart1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.