Fotbolti.net
29.09.06 - 14:06

Hinn 38 ára gamli Pavel Srnicek aftur til Newcastle (Staðfest)

Pavel Srnicek í leik með Newcastle árið 1995, í keppnistreyju af dýrari týpunni.

Pavel Srnicek í leik með Newcastle árið 1995, í keppnistreyju af dýrari týpunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hafa fengið markmanninn Pavel Srnicek til sín á nýjan leik og gerði hann samning fram í janúar við enska liðið. Srnicek spilaði með Newcastle í sjö ár en hann gekk í raðir félagsins árið 1991 frá Banik Ostrava.
Shay Given, aðalmarkmaður Newcastle, er meiddur og verður líklega frá í sex vikur vegna meiðslanna. Glenn Roeder taldi sig því þurfa á nýjum varamarkmanni að halda og leitaði því til Srnicek.

"Eftir að hafa horft á hann æfa í síðustu viku verð ég að segja að hann er í mjög góðu formi," sagði Roeder í dag en Srnicek fór til Banik frá Newcastle og spilaði síðan í stuttan tíma með Sheffield Wednesday, Brescia á Ítalíu, Portsmouth og West Ham en á síðasta tímabili reyndi hann sig hjá Beira Mar í Portúgal.

"Við buðum honum á leikinn á sunnudaginn gegn Everton, þar sem hann lifði sig algjörlega inn í leikinn, og hann heillaði okkur svo að við báðum hann um að æfa með okkur í eina viku."

"Ég verð að segja að Pav hefur litið mjög vel út og með því að fá hann aftur út árum erum við líka að lyfta liðsandanum,"
bætti Roeder við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.