29.09.06 - 19:59
Magnús Már Einarsson
Ólafur Þórðarson búinn að skrifa undir hjá Fram (Staðfest)
Ákvað að fara ekki í sveitina

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Ólafur Þórðarson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Fram. Ólafur samþykkti á miðvikudaginn að semja við Fram en skrifaði ekki undir strax vegna hjátrúar sinnar.
Ólafi lýst vel á Framliðið. ,,Mér lýst bara ágætlega á það. Annars hefði ég ekki tekið þetta að mér," sagði Ólafur við Fótbolti.net í dag.
Aðspurður út í leikmannakaup sagði hann. ,,Við erum að skoða þetta. Ég ætla að skoða þennan hóp almennilega fyrst áður en ég geri eitthvað í því."
Ólafur hefur þjálfað Skagamenn í nokkur ár en hann hætti með liðið í sumar. Á næsta ári mun hann mæta upp á Skaga með Framara og það gæti orðið skrýtin tilfinning. ,,Sjálfsagt verður það, það en ég hef áður þjálfað annað lið þannig að það er ekkert nýtt fyrir mér," sagði Ólafur sem býst við að hefja æfingar með Fram í kringum mánaðarmótin október og nóvember.
Á dögunum hafnaði Ólafur bæði Þrótti og ÍR og hann íhugaði að hætta þjálfun og fara í sveitina. ,,Það stóð alveg eins til," staðfesti Ólafur sem hefði þá farið í skógrækt og eitthvað slíikt en það mun bíða allavega um sinn þar sem hann ætlar að halda þjálfuninni áfram.
Leikmenn Fram gætu nú orðið ær og kýr Ólafs í staðinn. ,,Eða mínir sauðir, það er spurning," sagði Ólafur og hló þegar hann var spurður út í þetta.