29.09.09 - 17:17
Magnús Már Einarsson
Tómas Ingi Tómasson tekur við HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Ingi Tómasson er næsti þjálfari HK en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net nú síðdegis. Tómas Ingi gat valið á milli tveggja félaga en ákvað að velja HK.
Tómas Ingi hefur skrifað undir þriggja ára samning við HK en hann tekur við liðinu af Rúnari Páli Sigmundssyni sem er að taka við Levanger í Noregi.
Tómas Ingi var mikill markaskorari á árum áður en hann lék þá meðal annars með ÍBV, KR, Þrótti og Grindavík sem og í atvinnumennsku.
Fyrr á þessu ári var hann ráðinn þjálfari U21 árs landsliðsins þar sem hann starfar við hlið Eyjólfs Sverrissonar en Tómas Ingi mun hjá HK í fyrsta skipti þjálfa meistaraflokk hér á landi.
Auk þess að vera aðstoðarþjálfari hjá U21 árs landsliðinu þá hefur Tómas verið sérfræðingur í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport undanfarin tvö ár.
HK endaði í 3.sæti í 1.deildinni í sumar eftir að hafa verið lengi vel í baráttunni um að komast upp í Pepsi-deildina.