29.09.10 - 20:39
Hafliði Breiðfjörð
Lárus Orri Sigurðsson tekur við KS/Leiftri (Staðfest)

Lárus Orri skrifar undir samninginn í kvöld.

Mynd: KS/Leiftur

Lárus Orri skrifar undir samninginn í kvöld.

Mynd: KS/Leiftur
Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við þjálfun 2. deildarliðs KS/Leifturs og skrifaði undir samning við félagið í kvöld.
Lárus Orri skrifaði undir þriggja ára samning við félagið en hann tekur við starfinu af Róberti Jóhanni Haraldssyni sem hafði stýrt liðinu út tímabilið eftir að Ragnar Hauksson hætti í júní.
Ekki er enn ljóst hvort Lárus Orri muni spila með liðinu en hann hafði spilað nokkra leiki með ÍA seinni hluta sumarsins.
Hann hafði stýrt liði Þórs í 1. deildinni í sumar en sagði svo af sér í lok maí eftir ósætti þar.