Fotbolti.net
29.10.09 - 10:07
Hafliði Breiðfjörð

Steinar Ingimundarson tekur við kvennaliði Keflavíkur (Staðfest)

Andrés Hjaltason form.m.fl ráðs kvenna, Rebekka Gísladóttir leikm.ársins, Steinar Ingimundarson og Anna Rún Jóhannsdóttir fyrirliði.

Andrés Hjaltason form.m.fl ráðs kvenna, Rebekka Gísladóttir leikm.ársins, Steinar Ingimundarson og Anna Rún Jóhannsdóttir fyrirliði.

Canon

Mynd: Keflavík - Jón Örvar Arason

Kvennaboltinn
Keflavík hefur ráðið Steinar Ingimundarson sem nýjan þjálfara kvennaliðs félagsins en hann tekur við starfinu af Elvari Grétarssyni sem þjálfaði liðið síðasta árið.
Steinar gerði samning við Keflavík til eins árs. Skrifað var undir samninginn í K-húsinu í gærkvöldi.

Steinar var síðast þjálfari hjá Víði í Garði og var hjá þeim síðastliðin þrjú ár. Keflavík mun spila í 1.deildinni næsta tímabil og er mikill og góður hugur hjá leikmönnum, þjálfara og stjórn að koma liðinu aftur í efstu deild. Steinar mun hefja æfingar strax í næstu viku.

Keflavík beið afhroð í Pepsi-deild kvenna í sumar eftir að hafa misst allt liðið sitt í önnur lið síðasta haust. Því tefldi Keflavík fram ungu liði.

Liðið fékk ekkert stig í deildinni, skoraði aðeins sex mörk í 18 leikjum og fékk á sig 104.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.