Fotbolti.net
29.10.09 - 14:23
Magnús Már Einarsson

Jakob Már ráðinn þjálfari Víðis (Staðfest)

Jakob Már ráðinn þjálfari Víðis (Staðfest)
Canon

Mynd: Víðir Garði

Jakob Már Jónharðsson hefur verið ráðinn þjálfari Víðis í Garði en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Jakob lék áður með Keflavík og Val auk þess sem að hann reyndi fyrir sér í atvinnumennskunni.

Hann var aðstoðarþjálfari hjá Keflavík árið 2004 og árið 2006 þjálfaði hann Reyni Sandgerði í fyrstu deildinni. Síðustu tvö ár hefur hann síðan þjálfað Þrótt Vogum.

Stórn Víðis telur hann vera rétta þjálfarann til að koma liðinu upp í 1.deild að ári, segir í tilkynningu frá félaginu.

Talsverðar breytingar verða á liðinu frá því í sumar, sex ungir leikmenn hafa þegar gengið í raðir félagsins og koma til með að leysa eldri leikmenn af sem hafa lagt skóna á hilluna eða róið á önnur mið.

Á myndinni f.v eru Hörður Ingi Harðarson, Rúnar Hólm, Jakob Már Jónharðsson þjálfari, Ólafur Róbertsson formaður, Björn Bergmann Vilhjálmsson og Fannar Sævarsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.