Fotbolti.net
29.10.09 - 13:22
Magnús Már Einarsson

Peterborough fær markvörð á láni frá Man Utd (Staðfest)

Peterborough fær markvörð á láni frá Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Peterborough hefur fengið markvörðinn Ben Amos á láni frá Manchester United í einn mánuð.
Þessi 19 ára gamli leikmaður kemur til með að leysa Joe Lewis af hólmi meðan hann tekur út leikbann.

Fyrsti leikur hans verður væntanlega gegn Emil Hallfreðssyni og félögum í Barnsley á laugardag.

Það voru hæg heimatök fyrir Darren Ferguson, stjóra Peterborough, að fá Amos því að Sir Alex, stjóri Manchester United, er faðir hans.

,,Hann kemur hingað með góð meðmæli. Faðir minn er mjög ánægður með hann,\" sagði Darren Ferguson.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.