Fotbolti.net
29.10.09 - 16:59
Magnús Már Einarsson

Auðun Helgason í Grindavík (Staðfest)

Auðun skrifar undir samninginn í dag.

Auðun skrifar undir samninginn í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík hefur krækt í varnarmanninn Auðun Helgason frá Fram en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið á fréttamannafundi nú síðdegis.
Þessi 35 ára gamli leikmaður var fyrirliði Fram í sumar en eftir tímabilið íhugaði hann að leggja skóna á hilluna.

Auðun ákvað hins vegar að halda áfram í fótboltanum og núna hefur hann samið við Grindvíkinga. Hann kemur frítt til félagsins þar sem samningur hans við Fram er að renna út.

Auðun kom heim úr atvinnumennsku árið 2005 og gekk þá til liðs við sitt gamla félag FH. Síðastliðinn tvö tímabil hefur hann síðan leikið með Fram og í sumar skoraði hann eitt mark í sautján leikjum í Pepsi-deildinni.

Auðun er annar leikmaðurinn sem að Grindavík fær eftir tímabilið en á dögunum kom varnarmaðurinn Alexander Magnússon til félagsins frá Njarðvík.

Rætt verður við Auðun í viðtali hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.