29.11.06 - 16:34
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Fernando Ricksen til Zenit St Petersburg (Staðfest)

Ricksen (til vinstri) í leik með Zenit

Mynd: Getty Images

Ricksen (til vinstri) í leik með Zenit

Mynd: Getty Images
Fyrrum hollenski landsliðsmaðurinn og vandræðagemsinn, Fernando Ricksen, hefur gengið til liðs við Zenit St Petersburg frá skoska stórveldinu Glasgow Rangers en hann hafði verið á láni hjá Zenit frá því í ágúst.
Talið er að Rangers muni fá um eina milljón punda fyrir leikmanninn en hann skrifaði undir samning við félagið til 2009 en hann var lánaður frá Rangers eftir að hafa rifist við stjóran Paul Le Guen í flugvélinni á leið til Suður-Afríku í æfingaferð.
Ricksen hafði verið hjá Rangers síðan árið 2000 þegar hann kom frá AZ Alkmaar og var meðal annars leikmaður ársins í skosku deildinni árið 2005 undir stjórn Alex McLeish. Hann spilaði aðeins átta landsleiki fyrir Holland eftir að hann var rekinn úr liðinu eftir að hafa sparkað í hurð á hóteli liðsins.

Heimild: BBC