Fotbolti.net
29.11.07 - 19:12
Hafliði Breiðfjörð

Juan Roman Riquelme til Boca Juniors (Staðfest)

Juan Roman Riquelme til Boca Juniors (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínumaðurinn Juan Roman Riquelme er genginn í raðir Boca Juniors í heimalandi sínu en gengið var frá félagaskiptum hans frá Vilarreal á Spáni í dag.
,,Hann er þegar búinnn að skrifa undir, hann er leikmaður Boca," sagði Pedro Pompilio varaforseti Boca Juniors við fréttamenn á Bombonera leikvangi liðsins í dag.

Riquelme hjálpaði Boca að vinna Libertadores bikarinn í sjötta sinn fyrr á árinu en þá var hann lánsmaður hjá félaginu frá Villarreeal.

Þrátt fyrir frábæran árangur með landsliði Argentínu nú í haust hefur hann ekki verið í myndinni hjá þjálfara Villarreal eftir að ósætti kom upp þeirra á milli og því best fyrir alla að hann færi annað.

Hann hafði komið til Villarreal frá Barcelona árið 2003 en hann er 29 ára gamall.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.