Fotbolti.net
29.12.06 - 11:40
Magnús Már Einarsson

Fyrirliði kínverska landsliðsins til Charlton (Staðfest)

Fyrirliði kínverska landsliðsins til Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton hefur fengið Zheng Zhi fyrirliða kínverska landsliðsins að láni út tímabilið frá Shandong Luneng með möguleika á að kaupa hann næsta sumar.
Þessi 26 ára gamli leikmaður sem getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni er fyrsti leikmaðurinn sem Alan Pardew nýráðinn stjóri Charlton fær til félagsins.

Zheng var á reynslu hjá Charlton í síðasta mánuði áður en hann fór til Katar til að spila með Kínverjum á Asíuleikunum. Hann skoraði 21 mark fyrir Shandong Lundeng þegar að liðið varð meistari á síðasta ári.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.