29.12.06 - 16:12
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Steven Pressley til Celtic (Staðfest)

Pressley er kominn til Gordon Strachan í Celtic

Mynd: Getty Images

Pressley er kominn til Gordon Strachan í Celtic

Mynd: Getty Images
Celtic hefur unnið kapphlaupið um skoska varnarmanninn Steven Pressley sem hafði áður einnig gengist undir læknisskoðun hjá Alan Pardew og hans mönnum í Charlton.
Þessi fyrrum fyrirliði Hearts, sem fór frá félaginu fyrr í þessum mánuði, verður kynntur sem nýr leikmaður Celtic á blaðamannafundi seinni partinn í dag. Blair Morgan, umboðsmaður kappans, sagði að þetta hafi verið erfið ákvörðun.
,,Þetta var mjög, mjög erfið ákvörðun. Hann fékk tvö frábær tilboð frá tveimur frábærum klúbbum, en hugmyndin um Evrópu á næsta tímabili var munurinn," sagði Morgan.
,,Þetta var mjög, mjög erfið ákvörðun. Hann fékk tvö frábær tilboð frá tveimur frábærum klúbbum, en hugmyndin um Evrópu á næsta tímabili var munurinn," sagði Morgan.
Heimild: BBC
