Fotbolti.net
29.12.07 - 19:04
Magnús Már Einarsson

Ivica Skiljo til Keflavíkur (Staðfest)

Úr leik hjá Keflavík í sumar.

Úr leik hjá Keflavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar hafa fengið til liðs við sig sænskan leikmann að nafni Ivica Skiljo en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Skiljo er 27 ára gamall varnarmaður en hann er uppalinn í Gautaborg, hjá Kortedala IF sem einnig er uppeldisfélag Kenneths Gustavssonar sem hefur leikið með Keflavík undanfarin ár.

,,Skiljo er hugsaður sem miðvörður hjá okkur og er leikmaður sem er sterkur varnarlega í leikstöðunni maður gegn manni. Hann er drífandi leikmaður sem hrífur meðspilara sína áfram og fer ávallt fram í vítateig andstæðinganna í föstum leikatriðum og hefur skorað þar ófá mörkin," segir á heimasíðu Keflvíkinga.

,,Hann er mjög sterkur spilari og verður mikill liðsstyrkur fyrir Keflavík að mínu mati," sagði Guðlaugur Tómasson umboðsmaður Skiljo við Fótbolta.net í kvöld.

Á ferlinum hefur Skiljo leikið bæði í efstu og næstefstu deild í Svíþjóð með Kertedala IF, BK Häcken, Trelleborg FF og Örgryte IS.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.