29.12.08 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Dudu Aouate til Mallorca (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mallorca hefur keypt ísraelska markvörðinn Dudu Aouate frá Deportivo La Coruna.
Deportivo La Coruna á í fjárhagsvandræðum og þarf að selja leikmenn og Mallorca hefur fært sér það í nyt með því að kaupa hinn 31 árs gamla Aouate.
Talið er að Mallorca borgi einungis eina milljón evra fyrir leikmanninn en forráðamenn Deportivo La Coruna naga sig væntanlega í handarbökin yfir því að hafa ekki selt Aouate í sumar en þá bauð Valencia átta milljónir evra í leikmanninn.
Aouate kom til Deportivo frá Racing Santander árið 2006 en hjá Mallorca mun hann berajst við German Lux og Miguel Moya um sæti í byrjunarliðinu.

Heimild: AFP