29.12.11 - 09:00
Fótbolti.net
Vinsælustu fréttir ársins á Fótbolta.net

Vinsælasta frétt ársins er um Ingólf Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Jose Mourinho á þriðju vinsælustu fréttina.

Mynd: Getty Images

Tækling Jamie Carragher á Nani í leik Liverpool og Manchester United vakti mikla athygli.

Mynd: Getty Images

Balotelli lenti í basli með að klæða sig í vesti.

Nú er árið 2011 að líða og á árinu hafa birst hér á Fótbolta.net rúmlega 17 þúsund fréttir. Við höldum til haga hjá okkur upplýsingum um þær fréttir sem mest eru skoðaðar á árinu og í tilefni af því að árinu er að ljúka birtum við hér að neðan lista yfir þær 30 fréttir sem voru mest lesnar á árinu.
1. Ingólfur vill losna frá KR - „Mér finnst þetta ógeðslegt\"
Dags: 10. maí
Sprenging varð í notkun á Twitter á Íslandi á þessu ári og vinsælasta frétt ársins kom í kjölfarið á Twitter færslu hjá Ingólfi Sigurðssyni leikmanni KR. „Ungir og efnilegir leikmenn. Haldið ykkur frá KR,\" skrifaði Ingólfur á Twitter síðu sína 9. maí en hann fjarlægði færsluna tíu mínútum síðar. Ingólfur vildi með þessu reyna að losna frá KR eins og hann greindi frá í viðtali við Fótbolta.net degi síðar. Ingólfur náði markmiði sínu því hann gekk til liðs við sitt gamla félag Val áður en félagaskiptaglugginn lokaði 15. maí.
2. Liverpool anonymous (LA syndrome) - Pistill
Dags: 11. febrúar
Margir pistlar birtust á Fótbolta.net á árinu en enginn vakti jafmikla athygli og pistill Daníels Geirs Moritz í febrúar. Daníel Geir, sem var á dögunum valinn fyndnasti maður Íslands, gerði þar grín að aðdáendum Liverpool. Pistillinn vakti hörð viðbrögð hjá stuðningsmönnum þeirra rauðu en stuðningsmenn annarra liða höfðu gaman af.
3. Mourinho: Myndi skammast mín ef ég væri hjá Barca
Dags: 27. apríl
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, talar oft í fyrirsögnum og hann var brjálaður eftir 2-0 tap gegn Barcelona í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni. Mourinho var rekinn upp í stúku þegar hann mótmælti rauðu spjaldi sem Pepe fékk eftir klukkutíma leik. Eftir leik lét hann síðan heyra í sér í viðtölum.
4. Sjálfsfróun Ronaldinho lak á netið
Dags: 25. nóvember
Ferill Ronaldinho hefur legið niður á við undanfarin ár og í nóvember komst hann í fréttirnar fyrir myndband á netinu. Á myndbandinu sést Ronaldinho fróa sér fyrir framan vefmyndavél á baðherbergi. Ronaldinho hefur sjálfur neitað fyrir það að þetta sé hann og gert allt sem í hans valdi stendur til að taka myndbandið úr umferð en án árangurs.
5. Myndband: Grétar Rafn bar magavöðvana saman við Drogba
Dags: 24. jan
Grétar Rafn Steinsson var ekki ánægður með Didier Drogba í leik Bolton og Chelsea í janúar. Drogba var ósáttur eftir að Matthew Taylor sparkaði í hann og tók upp treyjuna til að sýna áverkana. Grétar svaraði þá með því að taka treyjuna líka upp og sýna magavöðvana. Myndbandið af atvikinu vakti mikla athygli og fjölmargir lesendur horfðu á það. Í viðtali við Fótbolta.net sagði Grétar síðar um atvikið: Hann fór eitthvað í taugarnar á mér í greyið.
6. Nani fékk mjög djúpan skurð eftir tæklingu Carragher
7. Minning (Pistill)
8. Myndband: Skoraði úr vítaspyrnu og tók heljarstökk í leiðinni
9. Hver er huldumaðurinn Albert Örn? (Pistill)
10. Hvað er málið með rauða djöfla Man Utd? (Pistill)
11. Þegar Fótbolti.net valdi Gylfa Þór í U21 árs landsliðið (Pistill)
12. Luis Suarez úrskurðaður í átta leikja bann
13. Er valið í lið eftir fótboltalegri getu? (Pistill)
14. Graham Poll: Carragher, Rodriguez og Suarez áttu að fá rautt
15. Myndband: Fljótandi fótboltavöllur í Tælandi
16. Dalglish um tæklingu Carragher: Heppinn að vera í Liverpool
17. Kærasta Ronaldo skýst upp stjörnuhimininn
18. Verstu kaup ensku félaganna - fyrri hluti
19. Myndband: Balotelli kann ekki að klæða sig í vesti
20. Þjóðvegur eitt (Pistill)
21. Viðkvæmt Excel skjal þjálfara Víkings lak út
22. Daniel Sakaluk leikmaður Fjarðabyggðar látinn
23. Gary Speed svipti sig lífi í nótt
24. Sir Alex Ferguson í fimm leikja bann
25. Lið ársins í ensku úrvalsdeildinni - Fjórir frá Manchester United
26. Giftingarhringur Rafael veldur vandræðum hjá Man Utd
27. Lífsviljinn - Mynd um Rafn Heiðdal og baráttu hans
28. Alex Ferguson: Heimskasta spurning sem ég hef heyrt (Myndband)
29. Neymar eignaðist son með sautján ára kærustu sinni
30. Roy Hodgson hættur með Liverpool - Dalglish tekur við (Staðfest)