Fotbolti.net
29.12.11 - 10:13
Magnús Már Einarsson

Kristinn Steindórsson til Halmstad (Staðfest)

Kristinn Steindórsson til Halmstad (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Steindórsson, leikmaður Breiðabliks, hefur gengið til liðs við sænska félagið Halmstad.
Kristinn hefur samkvæmt blikar.is skrifað undir þriggja ára samning við Halmstad.

Framtíð Kristins hefur verið í óvissu frá því að Íslandsmótinu lauk en samningur hans við Breiðablik rann út í október.

Kristinn hefur verið í lykilhlutverki í sóknarleik Breiðabliks undanfarin ár en í sumar skoraði hann ellefu mörk í Pepsi-deildinni.

Samtals hefur þessi 21 árs gamli leikmaður skorað 35 mörk í 94 deildar og bikarleikjum með Breiðabliki frá því árið 2007.

Halmstad féll úr sænsku úrvalsdeildinni í ár en Jónas Guðni Sævarsson leikur með liðinu auk þess sem Guðjón Baldvinson er að koma til félagsins frá KR. Það munu því þrír Íslendingar leika með liðinu í sænsku fyrstu deildinni næsta sumar.

Heimild: Blikar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.