Fotbolti.net
29.12.11 - 19:45
Elvar Geir Magnússon

Sandro Wieser til Hoffenheim (Staðfest)

Sandro Wieser til Hoffenheim (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Hinn 18 ára Sandro Wieser hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við Hoffenheim í Þýskalandi og er því orðinn samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar.

Wieser er efnilegur miðjumaður frá Liechtenstein og var meðal leikmanna landsliðs þjóðarinnar þegar það gerði 1-1 jafntefli við Ísland í fyrra.
„Við erum ánægðir með að hafa gengið frá samningum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann öðlast mikla reynslu. Hjá okkur fær hann réttu aðstæðurnar til að þroskast enn frekar sem fótboltamaður,\" segir Ernst Tanner, yfirmaður íþróttamála hjá Hoffenheim.

Wieser kemur frá Basel í Sviss en hann á 10 A-landsleiki að baki fyrir Liechtenstein.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.