29.12.21 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Matti Vill hafnaði starfi hjá Vålerenga

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Matthíasi Vilhjálmssyni bauðst skömmu fyrir jól að taka við sem aðstoðarþjálfari Vålerenga en hafnaði því.
Matthías hefði þurft að leggja skóna á hilluna ef hann hefði tekið tilboðinu. Matthías gekk í raðir FH fyrir síðasta tímabil, einmitt frá Vålerenga.
Matthías hefði þurft að leggja skóna á hilluna ef hann hefði tekið tilboðinu. Matthías gekk í raðir FH fyrir síðasta tímabil, einmitt frá Vålerenga.
„Það áttu sér stað samtöl en ég vil halda áfram að spila fótbolta. Ég hef klárað UEFA B gráðuna og ætla að halda áfram með þetta, ég þarf svo að finna út úr því hvort ég vilji fara út í þjálfun af fullum krafti. Ég lít á þetta sem flotta viðurkenningu fyrir mig að fá svona boð. Þetta var mjög stórt tækifæri fyrir mig en ég vil halda áfram að spila fyrir FH og ná árangri þar," sagði framherjinn við 433.is í dag.
Matthías, sem er 34 ára gamall, lék með Vålerenga í tvö tímabil og var vel liðin hjá félaginu. Hann skoraði átta mörk í 24 leikjum á síðasta tímabili með FH.
Tveir Íslendingar eru á mála hjá Vålerenga, það eru þeir Viðar Örn Kjartansson og svo gekk Brynjar Ingi Bjarnason í raðir félagsins á dögunum.