Fotbolti.net
30.01.05 - 17:22
Magnús Már Einarsson

Elber til Gladbach (Staðfest)

Elber til Gladbach (Staðfest)
Canon
Brasilíski framherjinn Giovane Elber sem yfirgaf Olympique Lyon á föstudaginn hefur gert eins og hálfs árs samning við þýska liðið Borussia Monchengladbach. Elber sem er 32 ára skoraði 111 mörk í 219 leikjum með Bayern Munchen í þýsku Bundesligunni áður en að hann fór til Lyon árið 2002.
Gladbach er í fallbaráttu í þýsku deildinni en Elber er sjöundi leikmaðurinn sem liðið fær í félagaskiptaglugganum. Elber er búinn að vera að jafna sig eftir ökklabrot en hann segist sjálfur ætla að koma sér í form sem fyrst og vonast hann til að geta byrjað að æfa eftir 2-3 vikur.

Christian Hochstatter yfirmaður íþróttamála hjá Gladbach var ánægður með að fá Elber til liðsins en hann sagði ,,Giovane er besti útlendingurinn í Bundesligunni frá upphafi og þegar að einhver eins og hann er á lausu og kostar ekkert þá verður þú að ná í hann."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.