Fotbolti.net
30.01.07 - 10:40
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Bruno Berner til Blackburn (Staðfest)

Berner er kominn á Ewood Park

Berner er kominn á Ewood Park

Canon

Mynd: Getty Images

Svissneski landsliðsmaðurinn Bruno Berner hefur ákveðið að ganga til liðs við Blackburn Rovers á átján mánaða samningi frá FC Basel í heimalandinu.
Þessi 29 ára gamli vinstri bakvörður skrifaði undir samninginn eftir að hann hreif stjórann Mark Hughes á vikulangri reynslu. Rovers hafa svo möguleika á að halda Berner, sem hefur spilað 16 landsleiki, í eitt ár í viðbót.

Berner má þó ekki spila með Blackburn í sextán liða úrslitum UEFA Cup gegn Bayer Leverkusen í næsta mánuði þar sem hann hefur nú þegar spilað með Basel í þeirri keppni.

Hann eru fjórði leikmaðurinn sem Blackburn kaupið í þessum mánuði en áður höfðu þeir fengið til sín David Dunn, Christopher Samba og Stephen Warnock.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.