Fotbolti.net
30.01.07 - 11:14
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Edgar Davids til Ajax (Staðfest)

Davids í leik með Ajax fyrir tólf árum síðan

Davids í leik með Ajax fyrir tólf árum síðan

Canon

Mynd: Getty Images

Edgar Davids hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Ajax frá Tottenham og hefur hann gert eins og hálfs árs samning.
Þessi 33 ára gamli reynslubolti gekkst undir læknisskoðun á mánudaginn og skrifaði undir samnings sem heldur honum í Amsterdam til 2008.

Davids spilaði fyrir Ajax frá 1991 til 1996, þar sem hann vann meðal annars UEFA Cup árið 1992 og Meistaradeildina árið 1995 áður en hann spilaði fyrir AC Milan, Juventus, Barcelona og Internazionale.

Davids mun án efa styrkja lið Ajax í baráttunni við PSV, en síðarnefnda félagið hefur átta stiga forystu á topp deildarinnar.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.