Fotbolti.net
30.01.07 - 13:19
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Ivica Olic til Hamburg SV (Staðfest)

Olic ásamt konunni sinni Natali Olic við komuna til Þýskalands

Olic ásamt konunni sinni Natali Olic við komuna til Þýskalands

Canon

Mynd: Getty Images

Rússnesku meistaranir CSKA Moskva hafa selt króatíska landsliðsmanninn Ivica Olic til þýska félagsins Hamburg.
,,Eftir fjóra mánuði hefði Olic farið á frjálsa sölu svo að við ákváðum að selja hann núna og fá eitthvað í staðinn fyrir hann," sagði Yevgeny Giner, forseti CSKA.

Giner sagði ekki frá því hversu mikið Hamburg þurfti að borga fyrir þennan 27 ára gamla sóknarmann en talið er að það sé einhversstaðar í kringum tvær milljónir evra.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.