Fotbolti.net
30.01.07 - 14:44
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Oguchi Onyewu til Newcastle (Staðfest)

Onyewu er kominn til Newcastle á láni

Onyewu er kominn til Newcastle á láni

Canon

Mynd: Getty Images

Bandaríski landsliðsmaðurinn hefur gengið til liðs við Newcastle United á láni út tímabilið frá Standard Liege í Belgíu eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag.
'Gooch', eins og þessi varnarmaður er kallaður, mun án efa styrkja vörn Newcastle sem hefur á tímum verið skipuð ungum og óreyndum leikmönnum á þessu tímabili vegna mikilla meiðsla í herbúðum þeirra.

Þessi fyrrum varnarmaður Metz var nálægt því að ganga til liðs við Middlesbrough í sumar en gekk það ekki í gegn. Eftir að hafa spilað vel fyrir þjóð sína á HM í sumar var hann einnig orðaður við stór félög eins og Chelsea, Real Madrid, Inter Milan, AC Milan og Marseille.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.